Ég hugsa að það sé kominn tími á nýtt blogg!
SEPTEMBER
Í lok September fór ég ásamt fjölskyldunni á "ströndina". Hún leit
nú meira út eins og íslensk fjara en hún var nánast bara klettar. Þad var sól
en ekkert rosalega heitt. Áður en vid fórum á ströndina forum við til systur
Martine (fósturmömmu) og borðuðum hádegismat. Við vorum einn og hálfan tíma að keyra
þangað frá þar sem ég bý og svo var halftime keyrsla þaðan til strandarinnar. Við
löbbuðum mikið og skoðuðum bæinn og svo sátum við öll á bekk við sjóinn og horfðum
á sólina setjast niður, allt svo rómó í Frakklandi. Seinna um daginn forum við til
næsta bæjar og það voru þvílíkt mikið af skútum. Mig langaði alveg svolítið að
taka eina og koma með hana heim. Daginn eftir forum við á fiskmarkað með helling
af skeljum og sjávardýrum. Fyrir hádegi ætluðum við í sjóinn en staður sem við fórum
á var ekki alveg að gera sig því að það var enginn sandur bara grjót svo við snerum við og borðuðum hádegismat sem var sjávarmaturinn
sem við keyptum um morguninn. Við borðuðum úti og ég brann smá... öðru megin á andlitinu.
Eftir matinn ákváðum við Martine og Alexis ( fósturbróðir) að reyna að fara aftur
í sjóinn á öðrum stað. Það var ekki heitt og sjórinn var býsna
kaldur en hann var samt mun hlýrri en sjórinn heima!! Þau voru ekkert á þvi ad
trúa mér. En öldurnar voru svolítid háar sem gerði þetta bara enn skemmtilegra
þvi við Alexis skutumst alveg upp þegar þær skullu á okkur. Þad var æðislega
gaman!! hlógum dátt.
OKTÓBER
Mánudagur var fyrsti dagurinn í október í ár og hélt ég að mánuðurinn myndi
byrja mjög vel þvi á mánudögum hef ég bogfimisæfingu og á þessari æfingu kom
maður til mín og spurði mig hvort ég væri frá Íslandi og aðvita jankaði ég því,
svo sagði hann mér að hann væri mikill aðdáandi Íslands. Hann hefur lesið 6
bækur eftir Arnald Indriðason og veit þar með alveg slatta um +Ísland. Hann
vissi hvernig föðurnöfnin okkar virka og hann vissi um Íslendingabókina. Hann
er fyrsti madurinn sem ég hef hitt sem vissi eitthvað meira um Ísland en að það
sé eldfjall, enginn McDonalds og heitt vatn. Svo kom 2.október... Vaknaði
klukkan 6 um morguninn með ælupest! High five Rakel. Hef aldrei tekið jafn
mikið af einhverjum töflum fyrir ælupest áður en það virkaði allavega því ælan
hætti seinnipartinn en ég var alveg frá næstu 2 daga, með hita, beinverki og
hausverk og svo bætist hálsbólga og kvef við. Svo smitaði ég Alexis af ælupestinni,
múhahahaaaa J.
Ensku kennarinn minn spurði mig hvort ég vildi halda fyrirlestur um Ísland
og auðvitað vildi ég það. hef aldrei verið jafn spennt yfir neinu í skólanum
eins og þessu. Þjóðarstoltið skein frá mér. En fyrirlesturinn gekk mjög vel, ég
talaði allavega í klukkutíma. Vid Dominika áttum að skipta 50 mín á milli okkar
og ég byrjaði og... ja, hún fékk ekki að tala mikið i þessum tíma.
Sunnudaginn 14. Okt. var AFS hittingur og fórum við í einhverja námu sem
var alveg stuð. Þad kom íslensk stelpa sem var skiptinema hérna í Frakklandi
fyrir tveimur árum og núna er hún í háskóla hérna. En það var alveg þvílíkt
skrítið að tala íslensku við hana því ég vissi ekki að hún væri að koma og
allir voru að tala frönsku í kringum okkur. Ég fékk skemmtilega spurningu í
skólanum þá viku. Það kom strákur til mín sem er með mér í bekk og spurði hvort
ég væri aldrei spennt eða glöð yfir neinu! Ég hefði kannski getað svarað honum
með glaðlegri svip en ég sagði að ég væri of glöð með mjög alvarlegum svip og ég
held að hann hafi verið alveg lúmskt hræddur vid mig. (Adamsfamilían J) Um miðjan mánuðinn kom stelpa frá
Þýskalandi og var hjá okkur í viku. Hún er jafngömul og Alexis og er þetta
einhverskonar skiptinám því að hún er að læra frönsku og svo fer Alexis til Þýskalands
í viku í janúar því hann er að læra þýsku. Vid Dominika fórum með bekknum hans
Alexis og þýsku krökkunum að skauta sem var mjög gaman og ég var spurð hvort að
hitastigið á Íslandi væri eins og þarna. Kvöldið 26.fór ég á James Bond í bíó með
Aude (fóstursystir) og auðvitað var myndin á frönsku en ég held samt að ég hafi
fattað myndina. Salurinn er mikið stærri en heima og sætin voru svona þúsund sinnum
þægilegri. Hefði auðveldlega geta sofnað þarna. Kvöldið áður, síðasta kvöldið sem
Justine (þýskastelpan) var hérna, fórum við út ad borða með annari fjölskyldu og
veitingahúsið var einhverskonar hellir, mjög smart. Í lok mánaðarins var verkfall
á lestarstöðinni þannig að ég þurfti að fara með bíl um morguninn og taka rútu tilbaka
og sem betur fer var það bara i 2 daga.
NÓVEMBER
Mánuðurinn byrjaði á tveggja vikna fríi. Sem var mjög fínt og afar rólegt.
Ég byrjaði á þvi að fara til Dominiku í "sleepover". Við elduðum pítsu
og cookies og horfðum á myndir. Eða við reyndum að baka pítsu og ég horfði á
mynd. Við fórum út í búð til að kaupa hráefni í pítsuna því okkur langaði að gera
hana frá byrjun með ást og umhyggju en við ákváðum samt að gera plan B og keyptum
tilbúna pítsu líka sem var afskaplega góð hugmynd þvi að þegar við tókum eftir þvi
(eftir að vera búin að láta pítsuna okkar hefast í einn og hálfantíma) að pítsan
okkur fékk greinilega ekki næga ást frá okkur því að degið stækkadi ekki eftir nóttina...
En tilbúnu pítsurnar heppnuðust vel.
Svo skelltum við Aude, Martine og Alexis í dýragarðsem er í tveggja tíma keyrslufjarlægð
frá þar sem ég bý og var alls ekki að hata það. Sérstaklega af þvi að draumurinn
minn rættist loksins, þvi í fyrsta sinn sá ég mörgæsir með eigin augum og þeir sem
þekkja mig mjög vel vita að ég elska þær. Við fórum líka í heimsókn til ættinga
Patricks (fosturpabbi) og Martinar og þar eyddum
við mestum tímanum í að borða. Þriðja nóv fór ég á fyrsta hokky leikinn minn og
er ég ekki vissi hvort ég hafi taugar í það, þvi leikurinn var eins og hin besta
spennumynd. Við fórum að skoða Nantes sem er bær þar sem Aude fer í skóla. Við
skoðuðum kastalann þar og verslunnargöturnar. Mér finnst þetta vera mun fallegri bær en Angers ( þar sem ég fer í skóla),
kannski er það vegna þess að hann er eldri og húsin meira gamaldags. Siðustu helgina
í fríinu þá fór ég á AFS hitting frá laugardeginum tils unnudagsins og var alveg
þvílíkt gaman. Kynntist mörgum stelpum þar mjög vel. Ég talaði heillengi vid
stelpu frá Noregi og strák frá Bandaríkjunum, sem var einn af sjálfboðaliðunum,
(hann var skiptinemi í fyrra en ákvað að vera lengur) um íslenskan mat og að íslendingar
séu allir skildir og þau hlógu endalaust af þvi að við borðum hrútspunga. Við fórum
í nokkra leiki og svo var okkur skipt í hópa, hver hópur átti að sjá um matinn og
þrífa, og auðvitad þurfti ég að lenda í matarhópnum. Ég var sett i það að skera
niður lauka og var ég sú eina sem fór að gráta og allir gerðu grín að mér. Ég reyndi
að halda mér frá eldamennskunni.
Annar ensku kennarinn minn spurði bekkinn hvort þau þekktu Game of thrones
og var ég sú eina. Hún er að lesa sjöttu bókina og mig hefur lengi langað til að
lesa tær. Hún bauðst first til þessað lána
mér bókina en svo kom hún til mín og sagði að hún skyldi bara gefa mér hana
þvi að hundurinn hennar hafi étið framan af henni. Á föstudaginn gisti Dominika
hjá mér og horfdum við á allar Twilight myndirnar og er planið siðan að fara á
siðustu myndina í bíó á miðvikudaginn. Sem audvitad verur à fronsku.
Ég held að þetta sékomið í bili. Vonandi fyrirgefið þið mér fyrir að vera ekki
nógu dugleg í blogginu.
Þangað til næst