föstudagur, 8. mars 2013

Vika í Annony og 4 mánuði eftir



Eins og ég sagði í fyrra bloggi þá ákvað ég að skella mér til Lyon fyrstu vikuna í mars og heimsækja Svönu. Ég fór með lest sem var 3 og hálfann tíma á leiðinni, frá Angers til Lyon, og svo þurfti ég að skipta um lest. Landslagið og húsin hérna er allt öðru vísi en þar sem ég bý. Það eru meiri hólar og hæðir hérna Ég var þvílíkt stressuð! Þetta var nú fyrsta stóra lestarferðin mín ein en þetta gekk allt mjög vel. Svo þegar ég hitti Svönu þá verð ég að segja að það hafi verið pínu skrítið og, já, pínu vandræðalegt en samt bara fyrstu 5 mínúturnar svo vorum við komnar á ágætt skrið. Svana kom með fóstupabba sínum að sækja mig. Hann fór sem skiptinemi á íslandi þegar hann var 17 ára. Á mánudeginum fórum við út í búð til að kaupa í kökurnar, maregns og súkkulaði kaka, sem við ætluðum að baka fyrir þriðjudaginn (STÓRI DAGURINN). Þegar komið var í búðina og við vorum að borga vörurnar voru tveir ungir menn á undan okkur og fóru þeir að horfa rosa mikið á okkur og byrjuðu síðan að tala við okkur. Við reyndum nú bara að tala sem minnst við þá og koma okkur í burtu en þetta var ekki allt sem gerðist þennan dag. Frakkar í suður frakklandi eru miklu meira fyrir það að flauta og horfa á ungar konur og það gerðist alveg nokkuð oft meðan við vorum að labba í næstu búð. Svo þegar við vorum að labba á gangstéttinni og það voru nokkrir bílar að keyra framhjá og það voru einhverjur strákar sem flautuð á okkur og um leið og þeir voru farnir var einhver bíll sem henti mandarínubörki í okkur!!! Lenti samt bara á Svönu. Þetta eitt af því fyndnasta sem gerðist þessa viku og hélt ég að ég myndi deyja úr hlátri. Vil líka koma því að að það var +22°c þennann mánudag, reyndar með pínu vindi en hann var ekki kaldur.
Svo komi stóri dagurinn!!! Kjéllann varð að konu! Við borðuðum kökurnar í hádeginu með foreldrum hennar og Svana var svo krúttleg að hún var búin að kaupa kerti með tölunni 18 og blys án þess að ég vissi. Svo fórum við að gera okkur sætar því við fórum svo bara út að borða um kvöldið, svo rómó og skoðuðum bæinn sem hún býr í sem er órtúlegar flottur. Við fórum á Mexikóskan stað og héldum svo áfram að skoða bæjinn.

Á miðvikudaginn fórum við svo til Lyon með nokkrum af hinum skiptinemunum frá þessu svæði. Það var rigning... en það stoppaði okkur ekki. Lyon er ótrúlega falleg borg, og stór!!!
Á fimmtudaginn fórum við svo til Valance. Hún er miklu minni en Lyon og, að mér finnst, fallegri. Við fórum með nokkrum öðrum skiptinemum, skoðuðum bæjinn og fórum á skauta. Það var +20°c í Valance en samt frekar kaldur vindur. Við sáum skrúðgöngu þar sem börn voru í aðalhlutverki með trommuslætti og stórum skrítnum brúðum. Það var rosa gaman að sjá þetta! Svo fórum við að skauta.
Verð líka að koma því að, að í gærkvöldi þegar við Svana vorum á leiðinni heim til hennar frá rútunni eftir Valance þá vorum við að labba framhjá háum veggi og það var rugby æfing á vellinum fyrir aftan vegginn, og ég var forvitin og var að kíkja í gegnum lítið gat þegar Svana fór allt í einu að öskra, frekar hátt og ég bara panikaði og hélt að það væri randafluga þannig ég tók sprettinn í burtu frá veggnum (hafði samt ekki hugmynd um hvað væri í gangi). Þá var ógeðslega stór könguló á veggnum. Bara við að vera íslendingar...

Takk fyrir vikuna Svana! Hún var æði!

Núna sit ég bara í lest (þegar ég er að skrifa þetta blogg), aaalveg að koma til Angers og er að hlusta á Villa Vill!! Gæti maður verið með eitthvað betra í eyrunum? Neeeei, ég held ekki. Sólin skýn í dag og ég held svei mér þá að sumarið sé bara að fara að koma. Þessa helgi er ég svo að fara á einhverja bæjarhátíð í bænum mínum á laugardaginn. Það verður matur og einhver tónlist og stuð. Ég bauð Hönnu, skiptinemi frá Noregi og mun hún vera hjá mér alla helgina! Við erum búnar að ná mjög vel saman, enda nánast frænkur.
Svo byrjar skólinn bara aftur eftir helgi og næsta tveggja vikna frí í lok april. Ég trúi ekki að þetta sé alveg að verða búið!! Bara 4 mánuðir eftir!!! Hvert fór tíminn eiginlega (ég er viss um að mamma og pabbi hugsi þessa spurningu líka þar sem ég er orðin lögráða).


Allt að styttast!


Sko þetta blogg er búið að vera í vinnslu í 2 mánuði sem þýðir að ég er greinilega ekki að standa mig í blogginu.

En ég er spá í að segja ykkur aðeins frá venjulegum dögum í vikunni hjá mér. Ókei, ég bý sem sagt í bæ sem heitir St. Mathurin sur loire og er í 10 mín fjarðlægð frá Angers með lest.

            Á mánudögum byrjar skólinn hjá mér klukkan 10 en kjéllan er alltaf mætt klukkan 8 Því það er ekki önnur lest fyrr en rúmlega 10 nema frá janúar til mars þá er lest klukkan hálf 10! Skiljiðið? Fyrsti tíminn eru íþróttir. Jú maður hugsar nú, já það hlýtur nú að vera það besta í skólanum fyrir manneskju eins og mig sem hefur gaman af flest öllum íþróttum en hate to tell you, það er ekki gaman. Fyrst var ég í þessum dansi, tjáningu eitthvað veit ekki alveg hvað þetta var. En núna erum við í badmínton tímum, og þegar ég heyrði það fyrst þá bara jeeeeeij það er gaman, en við erum að gera einhverjar skrítnar æfingar sem ég hef aldrei gert áður, en kannski er þetta bara eins og atvinnumennirnir gera það.  Síðan er dagurinn bara býsna langur og leiðinlegur, skil ekki neitt, er í heimspeki... Hef aldrei verið í heimspeki áður og núna í fyrsta skiptið á frönsku, það er...stuð. En ég er ekki búin fyrr en klukkan 18 en ég fæ að fara korteri fyrr því ég þarf að ná síðustu lestinni. Eru þið að fylgja? En svo hef ég æfingu í bogfimi!!!!! Þannig þetta
            Þriðjudagarnir eru aðeins skárri. Skólinn byrjar ekki fyrr en klukkan 10 en ég fer aðeins fyrr því ég fæ far með annari skiptinemafjölskyldu á lestarstöðina hérna í bænum og sú lest fer 20 mín í 8. Elska það!! En ég er búin í skólanum klukkan 4 sem er fínt en klukkan hálf 7 fer ég á fótboltaæfingu og er komin heim rétt fyrir 10.
            Miðvikudagarnir voru langir en ekki lengur. Skólinn byrjar klukkan átta sem þýðir að það er tekið lestina klukkan 7. En skólinn er búinn, aðrahverja viku klukkan 12 og hinar viknurnar 13 en... ég þurfti að bíða í Angers í 4-5 tíma því ég þurfti að fara í frönsku tíma fyrir byrjendur en ég er hætt því, því það var leiðinlegt. Þannig að ég er komin heim í hádeginu sem er æðiiii!
            Fimmtudagar eru ekki skemmtulegustu dagarnir. Hahah það skýn bjartsýnin úr þessu bloggi, en ég lofa það verður betra.  En já, skólinn búinn klukkan 3 og fótboltaæfing klukkan hálf 7 ooog komin heim rétt fyrir 10.
            Þá er komið að föstudögum. Þeir eru svo sem ekkert mikið öðruvísi. Ég veit ég er búin að vera hérna í rúmlega 4 mánuði en ég bara skil ekki neitt í skólanum. En skólinn er búin klukkan 3 og svo tekur bara helgin við, þar sem ég geri nánast ekki neitt. Íslenskur letihaugur, ójá!
Eigum við að fá einhverja bjartsýni í þetta? Neeei er það nokkuð? Jújú það kemur á eftir. Veðrið hérna er, kalt. Mér líður eins og ég sé eina manneskjan hérna sem er að frjósa úr kulda á daginn. Ég er í lopapeysu og úlpu með trefil og hinar stelpurnar eru í gallajakka... Ég er nú ekkert hlaupandi um allt segjandi öllum að ég sé íslendingur í þeim efnum. Loftið er ekkert hlýrra en á íslandi en það sem ísland hefur er snjór!!! Ég sakna snjósins! Það virtist vera að það myndi snjóa ALLSTAÐAR nema á þessu litla svæði sem ég bý á en það var að breytast! Þegar ég vaknaði um morguninn á föstudeginum 18. þá var allt hvít. Það var ekkert mikið, bara svona 1 til 2 sentimetrar fyrir öllu, en það var hvít og ég var brosandi allann daginn. En það hefur verið mikið um rigningu hérna og fóstufjölskyldan segir að það hafi ekki ringt svona mikið hérna síðustu 15 árin! Hún leyfði snjónum aðeins að sýna sig en hún kom aftur og frost eftir! Þá fóru frakkar að panika. Það er bara þvílíkt mikið mál því það er smá snjór en þeir eru náttúrlega ekki vanir snjór og nota ekki nagladekk.

En stuttu eftir síðasta blogg þá hitti ég íslending í bænum þar sem ég fer í skóla (Angers). Ég var búin að heyra að það væri íslendingur í körfuboltaliðinu í bænum og “mamma” var búin að segja mér að við gætum farið á leik með honum. En ég var bara eitthvað að bíða eftir að frönskutíminn (sem ég fór í en er núna hætt) myndi byrjar og sat í öftustu röðinni svo var bara helling af fólki að koma inn og það setist einn maður í sömu röð og ég. Svo heyrði ég bara allt í einu íslensku og var ekki alveg að trúa þessu. Þá var það þessi körfuboltaleikmaður sem heitir Logi. Hann býr hérna með konunni sinni Birnu og tveimur börnum, Söru og Loga (yndislegir krakka). Svo kom hann mér í samband við stelpu sem býr hérna í frakklandi. Mamma hennar er frá Akureyri og pabbi hennar er franskur. Hún heitir Anna Þórdís og er jafn gömul mér og hún á systur sem er minnir mig 15 (er samt ekki alveg viss). Þannig það eru fleiri íslendingar hérna en ég bjóst við!
            Dominika Fór fyrsta desember. Ég fékk að fara með Ivette á lestar stöðina því Bastian var líka að fara. En áður en hún fór þá setti hún bleikar strípur í hárið á sér, held að ég verði að taka það á mig því ég sagði henni að það yrði fyndið ef hún myndi mæta með öðruvísi hár en þegar hún kom til Frakkland. En já, á lestarstöðinni þá þurftum við að bíða pínu eftir dominiku og fósturforeldrum hennar og fengum okkur heitt súkkulaði! En þau náðu samt lestinni. Síðan var svo mikið knúsað að hún rétt náði að hoppa uppi lestina þegar hurðin var að lokast. Ég sakna hennar smá mikið. Það var æðislegt að kynnast henni!

JÓL & ÁRAMÓT

Ég ætla bara að segja það strax í byrjun, það eru engin jól eins og heima! Þetta voru mjög svo sérstök jól. Í fyrsta lagi ENGINN snjór (ég var ekki alveg sátt við það) og í örðu lagi engar jólaseríur... En við vorum sem betur fer með jólatré og það var alvöru þannig ég stóð við það og þefaði af því til að finna einhverja jólalykt og fá smá jólaanda. Það var enginn jólabakstur heldur. Aðfangadagurinn var frekar rólegur, engar jólahreingerningar og enginn að stressa sig yfir mat. Við eyddum aðfangadagskvöldi hjá bróður Martine-ar. Borðuðum þar ásamt þeim nánustu í þeirri ætt. Fórum sirka 8 um kvöldið og vorum kom heim rúmlega 4. Fyrst fengum við fordrykk sem var mjög góður svo borðuðum við skeljar, rækjur og humar í forforrétt svo kom einhver hefðarréttur, held að það hafi verið andarkæfa með einhverri gulri fitu svo borðuðum við brauð með og fengum eitthvað kúkabrúnt pestó... pestóið var ekki gott. Svo var komið að aðalréttnum og hann var nautakjöt og gæs saman með einhverju grænmeti og sósu. Í eftirrétt fengum við bronie og einhverja aðra köku sem ég man ekki hvað hét eða hvernig smakkaðist. Í eftireftirrétt fengum við svo áfengann ís. Þetta virðist mikið en þau fá sér ekki mikið í einu og matur hérna í Frakkalandi er mjög léttur. Og ég að reyna að vera dama þá fæ ég mér bara einu sinni á diskinn. Svo er líka tekin góð pása milli máltíða, allir fara að spila og hafa gaman. Áramótin voru líka frekar sérstök. Fjölskyldan eyddi þeim ekki saman. Martine, Partick og Alixis fóru til systur Martine-ar og voru þar í 2 daga. Ég varð eftir hjá Aude og fékk að vera með henni og vinkonum hennar. Það var alveg fínt en það var ekkert farið út að sprengja og vera með bliss, horft á áramótaskaup. En þetta var samt alveg ágæt kvöld. Við fórum í spil og borðuðum. Síðan hringdi ég heim stuttu eftir miðnætti heim og talaði í 5 tíma! Þannig það var farið seint að sofa. Afgangurinn af fríinu var líka frekar rólegur, gerði ekkert sérstakt, bara leti. Síðan byrjaði skólinn bara á mánudeginum.

NÝJA ÁRIÐ

Mér finnst þetta búið að vera allt of fljótt að líða! Ekki það að mig hlakki samt ekki til að koma heim (: Mér finnst samt franskan ekki ganga nógu vel... Ég kann samt alveg eitthvað. Ég tala bara frönsku og ég skil ef manneskja er að tala við MIG en þegar ég er að reyna að hlusta á aðra tala þá er bara eins og eitthvað loki fyrir. En það hlýtur að koma bráðum. Ég byrjaði í fótbolta eftir jól og það er mjöög fínt. Finnst tíminn samt vera miklu fljótari að líða en stelpurnar eru mjög indælar. Mér var samt sagt að ég mætti ekki keppa með þeim því ég er ekki frönsk. Það er miklu meira vesen að fara fá að æfa eitthvað hérna heldur en heim. Þú þarft að skrifa allt um þig, láta þjálfarann fá mynd af þér, fyrrum félag og svo sendir hann þetta eitthvert (veit ekki hvert) og þau þurfa að gefa leyfi hvort ég megi keppa eða ekki. Ég er samt alltaf í bogfimi og það er ótrúlega gaman! Ég tók þátt í keppni (fyrsta keppnin mín) og ég lenti í fyrsta sæti. Það var samt eitthvað vesen því dómararnir héldu að ég væri strákur... Veit ekki hvort að það hafi bara verið nafnið eða hvort ég lít svona karlmannslega út en allavega fyrst þegar það var kallað á mig þá fór ég uppá pallinn og þá stóð kannski 11 ára gamall strákur við hliðin á mér og ég hugsaði bara hvort að þetta væri eitthvað blandað og svo heyrði ég alla segja: þetta er stelpa, þetta er stelpa. Svo sögðu þau eitthvað og ég stóð þarna eins og eeeeldrautt epli  andlitinu s og epli  æételpa, þetta er stelpa. Og  og svo heyrði rfa að gefa leyfi hvort í andlitinu. Svo var mér sagt að koma niður en ég fengi samt verðlaun. Svo fór ég aftur upp á pallinn í réttum flokki. Næsta keppni verður síðan úti þar sem við skjótum á myndir af dýrum og á plastdýr. En keppnin virkar þannig að keppendunum er skipt niður í þrjú stig. Byrjendurnir eru á 3. Stigi og svo vinnur maður sig upp á 1. Stig. Ég keppti á 3. Stigi og til þess að komast á 2. Stigið þá þurfti ég hafa að minnstakosti 240 stig. Kjéllan var með 264 stig þannig að í næstu keppni verð ég að keppa á 2. Stigi, sem þýðir að skotmarkið verður minna. Ég get ekki beðið!
            Fyrstu vikuna í febrúar er ég síðan búin að vera með premiére, sem er yngsti bekkurinn, því bekkurinn minn var í einhverjum prófum. Krakkarnir voru mjög skemmtilegir og þau töluðu meira við mig heldur en flestir krakkarnir í  bekk mínum. Kennararnir voru líka meira að láta mig taka þátt í tímunum sem var fínt fyrir mig. Frakkar eru ekkert mikið að hittast eftir skóla og gera eitthvað saman enda búa þau öll í sitthvorum bænum. Ég er samt búin að hitta nokkrar stelpur frá afs í Angers og við erum búinar að fara niðrí bæ og fá okkur að borða og það er mjög fínt. Ég er búin að fara tvisvar sinnum í sund hérna en þetta var bara mjög svipað og heima en heitupottarnir voru ekkert sérlega heitir, þeir voru eiginlega frekar kaldir og sundlaugin var ísköld. Svo eru ekki stráka og stelpu klefar. Heldur er þetta allt frekar opið nema það er einn veggur milli sturtanna en þegar þú ætlar að skipta um föt þá ferðu inn í lítinn klefa með voða litlu plássi og þar ferðu í sundfötin. Það er engin nekt í gangi hérna.
           
            Ég er búin að vera í viku fríi núna og á viku eftir, er alls ekki að hata það! En ég gerði ekkert mjög mikið fyrstu vikuna nema á föstudaginn fór ég í Disneyland!!!!! Það var sjúklega gaman! Við Matrine, Aude, Marjeri (hef ekki hugmynd um hvernig þetta nafn er skrifað) og Clémo, kærasti Marjeri lögðum af stað, í bíl, klukkan 6 um morguninn og vorum komin rétt fyrir 10. Þetta var eins og draumur að rætast sem ég vissi ekki að ég ætti. Það eina sem vantaði var að allir á staðnum myndu bresta í söng og dans en þetta var þvílíkt gaman. Við fórum í flesta ef ekki alla rússibanana. Byrjuðum reyndar í einhverskonar felliturni sem var inní drauga hóteli og verð að segja að mér fannst hann verri en felliturninn í danmörku. Svo gátum við auðvitað séð mynd af okkur þegar við vörum að detta. Við eyddum öllum deginum þarna og áður en við fórum þá var skrúðganga með Mikka og öllum félögunum með þvílíkt disneylegt lag og langaði mér eiginlega bara og fara með þeim og dansa og syngja! Ég var eins og barn, brosandi nánast allann tíman eins og ég væri bara á besta stað í lífinu. Seinni vikunni mun ég eyða hjá Svönu, önnur íslensk stelpa sem er hérna sem skiptinemi. Hún býr rétt hjá Lyon og þá fæ ég tækifæri að skoða fleiri franska hluti og staði. Svo er náttúrlega stór dagur á þriðjudaginn, fyrir mig. Haldi þið ekki bara að ég sé að verða 18 ára gömul! Grey mamma og pabbi. Næst yngsta dóttir þeirra er að verða fullorðin kona. Hvað segir það um þau?? Ég mun sem sagt eyða stóra deginum með Svönu. Planið var samt í upphafi að fara til Guðbjargar sem býr í París en hún verður upptekin þessa viku þannig í staðin ákváðum við að ég myndi bara fara til Svönu.
            Eins og ég skrifaði fyrir ofan þá er ég ekki alveg að trúa því að það séu bara rúmlega 4 mánuðir eftir! Mér finnst þetta búið að vera frekar fljótt að líða! Ekki það að mig hlakki ekki til að koma heim og ég veit samt að ég á eftir að sakna margts hérna, þá sérstaklega fjölskyldunnar! Ég er alveg ótrúlega heppinn. Þau eru alveg æðisleg! Við erum búin að vera að finna hluti sem mig langar að gera og skoða áður en ég fer því það er ekki mikið eftir. Ég á eitt tveggja vikna frí eftir og svo er éga vonandi búin í skólanum í byrjun júní og þá ætlum við Svana að reyna að fara til Guðbjargar og vera í París í sól og blíðu! Ég get ekki beðið eftir sumrinu. Það er varla búið að vera snjór hérna en það er samt mjög kalt. Oft frost á morgnanna og þá er ekki gaman að þurfa að bíða eftir lestinni... En núna þegar ég er að skrifa þetta blogg þá er ég á leiðinni til Svönu með lest og verð í henni í 3 og hálfan tíma!! Svo þarf ég að skipta um lest ( sem betur fer bara einu sinni en það er nóg) og ég er alveg að fara á taugum yfir því! Því ef ég missi af lestinni, eða fer í vitlausa lest þá er ég bara týnd en ég mun hafa Svönu í símanum!

Ég þarf nauðsynlega að fara að taka  mig á í þessu bloggi! En ég vona að ykkur líka það sem komið er og ég reyni að standa mig betur. En það er örugglega helling sem ég er að gleyma en held samt að það merkilegasta sé komið.

Njótið!