föstudagur, 28. september 2012

Fljott ad lida!

Trui tvi varla ad a naest fostudag er eg buin ad vera herna i manud! Buid ad vera rosalega fljott ad lida. Eg er ekki enn byrjud ad skilja neitt i skolanum en herna heima ta er ad koma svona eitt og eitt ord og tad kemur fyrir ad eg skilji setningu, ta verd eg mjog glod. i sidustu viku keypti eg mer aefingarbok fyrir byrjendur og er hun mjog god tvi eg er lika i henni i skolanum svo eg hef eitthvad ad gera tar og dagurinn er tusundsinnum fljotari ad lida. Eg byrjadi lika i fronsku timum fyrir byrjendur og eru teir bara a midvikudogum klukkan 5 og ta er eg buin i skolanum kl 1 adra hverja viku annars 12 og tvi tad er engin lest fra klukkan 08.08 til 16.29 a dagin ta tarf eg ad bida i Angers. Tad er samt fint tvi eg get skodad meira sem er i baenum. I tassari viku forum vid Dominika ad skoda kastalan herna i Angers og var tad tvilikt flott.
En tad er buid ad gerast alveg heill hellingur sidan eg bloggadi sidast.
16. sept var hittingur fyrir alla skiptinemana i Main fylkinu og var tad mjog gaman. Tad var mjog heitt og nanast enginn vindur. Vid krakkarnir forum a einhvernvoll tar sem vid vorum ad leika okkur ad skjota af? (er ekki viss hvort madur segi af eda ur...) boga og i kuluspili og mer fannst svo gaman i bogfimninni og eg nefndi tad vid Martine a leidinni heim og hun sagdist aetla ad athuga hvort eg gaeti aeft tatta svo nuna er eg buin ad fara a tvaer aefingar og tad er aedi! Eg er ogedslega god i tessu, djok er er samt stolt af tvi eg er er nanast bara buin ad hitta gula ( sem er best og ja eg er ad monta mig pinu): En vid krakkarnir hittumst alltaf einu sinni i manudi og gerum eitthvad saman, sem er fint tvi ta kynnist madur fleiri krokkum sem eru i somu sporum og thu. Og jiii minn eini allt tetta kossa stuss, tatta er bara vesen. Vid Martine vorum med teim fyrstu til ad maeta tarna og svo kom alltaf fleira og fleira folk og eg veit ekki hversu oft madur var kysstur og alltaf 2 sinnum og svo aftur tegar vid forum! I aint like it. En tetta venst kannski.
Fyrsti Itrottatiminn vinn var i sidustu viku og var hann an efa eitt af tvi allra vandraedalegsta sem eg hef upplifad. Eins og eg sagi her fyrir ofan ta er engin lest milli 08.08 og 16.29 og 3 daga byrjar skolinn hja mer ekki fyrr en 10 og tennan manudag var fyrsti timinn itrittir og hann byrjadi ekki fyrr en klukkan 10 tannig eg hafdi tarna rumlega 2 tima adur en timinn byrjadi svo eg for bara uppa skrifstofuna til ad spurja hvar itrottahusid vaeri tvi eg hafdi ekki huglmynd um tad. Hun teikandi kort fyrir mig en tad var greinilega ekki nogu gott tvi eg villtist!Eg stod vid einhvern mur vegg med gaddavir upp a og stor hvit hurd med myndavelum ut um allt tannig eg sneri frekar smeyk vid og fann leidina loksins og ta var en klukkutimi i ad timinn myndi byrja. En tegar eg kom inn i husid vissi eg ekkert hvert eg atti ad fara svo eg spurdi dyravord hvort hann taladi ensku. fyrst spurdi eg hann a fronsku en hann skildi mig ekki... svo eg spurdi hann a ensku, ta kalladi hann i anna dyravord og eg benti bara a nafnid a kennaranum og hann syndi mer leidina ad stiga og efs a stiganum var hurd og eg opnadi hana. Nei, ta yskradi svo ogedslega mikid i hurdinni ad allir i salnum steintognudu og horfdu a mig. Eg lokadi bara og for aftur nidur og ut. Svo eg for bara og settist i einhverja troppur tarna tar sem var veggur sitthvoru megin vid og tegar tad voru 20 min i timan kom strakur sem er med mer i bekk og labbadi fram hja mer og gerdi mig liklega til ad elta hann og stod upp og aetladi ad labba af stad, sa eg ad hann sat bara hinu megin vid vegginn og eg sneri vid a punktinum og settist aftur i troppurnar. Svo byrjadi tessi blessadi itrottartimi! Vid byrjudum a tvi ad hlaupa i hringi og mattum ekki snerta hvort annad svo vorum vid tvo og tvo saman og attum ad dansa eitthvad. Svo var komid ad tvi... Vid turftum ad semja okkar eigin dansspor... mig langadi bokstaflega ad hlaupa ut og segja eg er haett, farin heim. Eg stod tarna eins og halviti og horfdi a alla fila sig tvilikt mikid! kennarinn kom nokkrum sinnum til min til ad reyna ad fa mig til ad tetta eitthvad i hug sem eg gaeti gert, svo byrjadi eg bara ad taka skref fram og til baka og ta kom hun hlaupandi til mjin og sagdi ad eg aetti ad halda tessu afram. Svo tad sem eg gerdi i tessum til a, medan allir voru ad taka stokk og med tvilikar hreyfingar, tok eg skref fram og til baka.
Sidasta laugardag for eg a fyrsta alvoru korfuboltaleikinn minnog var tad tvilikt stud. fyrr um kvoldid forum vid i mat til brodur Martine og hann a 3 straka sem eg giska a ad eru a aldrinu 7, 6 og 4 og bjorgudu teir kvoldinu algjorlega fyrir mig. Tessi i mjidjunni teiknadi mynd handa mer og var hann alltaf ad reyna ad tala vid mig, stundum skildi eg eitt og eitt ord i setningunni og gat ta fattad hvad hann var ad meina en annars kinkadi eg bara kolli eda sagdi Oui. sidasta sunnudag for eg og skodadi USSE kastalann, sem er tileikadur Tyrniros, med Dominiku og host mommu hennar og vid forum lika i lautarferd og tad var mjoog gaman. Tad er aedi ad geta skodad alla tessa kastala herna. Buin ad skoda 3 nuna og vonandi verda teir fleiri adur en eg kem heim. Eg er buin ad heyra lagid little talks med of monsters and men herna i frakklandi 2 sinnum og var tad geggjud tilfinning! Eg vaknadi einn miorguninn brosandi tvi eg heyrdi tad i utvarpinu. Krakkarnir eru allir ad koma til og tala tau vid mann mun meira, tad gledur mitt litla hjarta, thott tau segi bara hallo. En tetta fer ad koma. I morgun fer eg med fjolskyldunni i strondina , sem eg held ad se 2 tima keyrsla en eg hef nu tolan mun meira. en eg efa ad tad verdi eitthvad heitt tvi tad er farid ad kolna mjog, serstaklega a kvoldin og morgnanna. Ta kemur teppid ser vel sem mamma hekkladi fyrir mig :D

En tetta er komid nog i bili :) Hlakka til ad lesa commentin fra ykkur, hvort sem tau verda her eda a facebook. Svo tarf eg ad fara ad setja einhverja myndir inna.

Tanga til naest
Rakel Bra

mánudagur, 10. september 2012

Nu byrjar thetta!

ATH! Eg get ekki notad islenska stafi og stafirnir a lyklabordinu er a allt odrum stad en heima svo thetta verdur kannski svolitid skrautlegt blogg!!

Vid islendingarnir lentu, a flugvellinum i Paris um klukkan half 9 og thergar vid stigum ut ur flugvelinni var faranlega heitt (26 stiga hiti). Vid bydum a flugvellinum i tvo tima eftir rutu sem svo for med okkur a hotelid sem vid gistum a. Thar voru allir krakkarnir nema eitt land komid. Okkur var skipt nidur i herbergi eftir thvi i hvada fylki vid yrdum og var eg med tveim fra kina, ein fra tekklandi og ein fra brasiliu, svo baettist ein vid fra thyskalandi a laugardaginn(thad voru samt mun fleiri ad fara i thetta fylki, thau voru bara i ordu herbergi). A laugardeginum var ollum londunum skipt i tvo hopa og for fyrri hopurinn (sem eg var i) fyrir hadegi ad skoda Paris og thar stod natturlaga The Eiffel-tower langt uppur!! Eg veit ekki hvaad eg a margar myndir af honum nuna. Svo eftir hadegi var okkar hop skipt nidur i minnin hopa og vorum vid, islendingarnir, med donunum i hop. tharna vorum vid bara ad skrifa hvernig vid heldum ad dvolin aetti eftir ad vera og svo var bara verid ad tala adeins vid okkur. A sunnudaginn var svo komid ad thvi! Minn fylkishopur lqgdi af stad fra paris med lest klukkan 8 um morguninn. Thar hitti eg svo fosturfjolskylduna og eru thau mjog fin. I dag for Aude (eldri "systir" min) med mer i lest til ad sina mer leidina i skolann. Eg er 10 min med lest i skolan og 10 min ad labba eftir that svo a morgun mun eg byrja i skolanum og fara ein og eg thqrf lika ad standa fyrir framan bekkinn og kynna mig, shjeet hvqd thad er stressandi !!! Eg komst ad thvi i dag ad ein stelpan sem var med mer i herbergi i Paris er lika i thessum skola. Vaaa hvad eg var anaegd haha. Stelpurnar herna fara nanast allar ains klaeddar i skola eda i gallabuxum hlyrabol og jakka (bissness jakka). Eg er nanast buin ad koma mer alvag fyrir. Eg fae eigid herbergi sem er bysna stort og thaegilegt rum. Husid er aedislegt! Held ad tetta se bara naestum eins og drauma husid okkar mommu, tvi thad er risa gardur lika sem er ekkert sma flottur!! Thad er sjuklega heitt herna, veel yfir 20 gradur og nanast enginn vindur, thannig eg er ad kafna ur hita herna.Og i sambandi vid hvernig gengur med fronskuna... Tha gengur ekkert en eg er bara buin ad vera herna i 3 daga og er ad skita a mig ur feimni. En eg fer vonandi fljotlega ad blasa hana fra mer.
En eg held ad thetta se bara komid i bili. Eg segi ykkur fra thvi hvernig gengur i skolanum og ollu i nanari framtid :D

Bestu kvedjur
Rakel

Es.
TIL HAMINGJU MED DAGINN KAREN!!!

fimmtudagur, 6. september 2012

Aðeins 1 dagar og allt að gerast!!

Þá eru aðeins 1 dagar í að maður heldur af stað í heljarinnar ævintýri. Ég var á Akureyri til þriðjudagsins en þá fórum við mamma, pabbi, Svanhildur og Preeya suður. Ég þurfti að kveðja Sólrúnu á Akureyri og það var alveg hræðilega erfitt, já... það var grátið. En á mánudagskvöldið fékk ég að vita að ég væri komin með fjölskyldu og var að mikill léttir en afs stofan hér á Íslandi var ekki komin með neinar upplýsingar um fjölskylduna og ætluðu að senda mér þær um leið og þær mundu berast til þeirra. Á Þriðjudagskvöldinu fékk ég síðan póst frá Martine og Patrick og tilkynntu þau mér að þau væru fósturforeldrar mínir næstu 10 mánuðina og ætlu þau að senda ýtarlegri upplýsingar um þau og senda myndir af fjölskyldunni og af húsinu þeirra. Svo bara seinna um kvöldið fékk ég þær upplýsingar og lýst mér mjög vel á þessa fjölskyldu. Þetta er sex manna fjölskylda, tvær dætur og tveir synir. Stelpurnar eru 25 og 20 og strákarnir eru 23 og 15. Yngri dóttirin og yngri sonurinn búa heima. Þau eiga hund en hann er heldur minni en minn. Bærinn heitir St Mathurin sur Loire og er hann í vesturhluta Frakklands. Mér líst mjög vel á fjölskylduna og staðinn. Ég er búin að vera í sambandi við þau í gær. Í dag munum við mamma og pabbi fara á fund hjá afs um dvölina mína úti.
Á morgun mun ég svo flúga frá Íslandi klukkan 15.30 og lenda í París klukkan 21.15. Þá munum við fara á hótel þar sem allir hinir skiptinemarnir eru og eyða með þeim föstudagskvöldinu og öllum laugardeginum. Ég held að planið sé að fara í þriggja tíma skoðunarferð um París og svo frétta ég frá einum skiptinemanum að við munum fara að Eiffel truninum og dansa einhvern funcky chickan dance en ég veit ekki hvort að það sé rétt...
Þetta er lítil mynd bænum.
Þetta er húsið sem ég mun búa í.


En já, þá held ég að þetta sé komið í bili. Þið heyrið nú vonandi í mér næst þegar ég verð úti en þið megið alveg búast við því að það líði langt á milli blogga... En ég ætla samt að reyna að vera duglega. Endilega commentið eitthvað, það er gaman að lesa þau! 

Bestu Kveðjur

Rakel Brá!

laugardagur, 1. september 2012

Ekkert að frétta!!

Eftir akkurat viku á þessum tíma verð ég í París í Frakklandi!!! Ég verð að segja að stressið er farið að segja til sín en auðvitað er spennan og tilhlökkunin þarna líka en stressið þó meira því það er bara ekkert að frétta frá frakklandi í sambandi við fjölskyldu þannig ég hef enn enga hugmynd um hvar og með hverjum á eftir að eyða næstu 10 mánuðum með. Ég er í hóp á facebook með nokkrum skiptinemum, allsstaðar að úr heiminum, sem eru einnig að fara til frakklands, þar eru krakkar að spjalla saman um allt sem tengist skiptináminu og nú á síðustu þremur dögum hefur verið mikið um það að krakkar sé að pósta að þau séu komin með fjölskyldu. Sumir er samt bara komnir með Welcome family en það eru svokallaðar bráðabirgðarfjölskyldur og eru skiptinemarnir þá bara tímabundið hjá þeim. Ég held að við séum þrjár (af fjórum) sem eiga eftir að fá fjölskyldu frá Íslandi og ef við verðum ekki komnar með fósturfjölskylduna okkar áður en við förum þá held ég, ég er samt ekki viss, að við fáum þessa svokallaða Welcome family á miðvikudaginn. Ég vona samt svo sannarlega að við fáum þær fyrr því mér finnst tveir dagar svolítið stuttur tími til þess að kynna sér fjölskylduna. Það er frekar óþæginleg tilfinning að vita ekki hvar maður á eftir að búa næstu 10 mánuðina og að vita ekkert um fólkið sem maður á eftir að búa hjá. En ég verð samt sem áður mjög ánægð þegar ég fæ að vita fjölskylduna og hvar ég á eftir að búa. Svo eru það gjafirnar!!!! Okkur var ráðlagt að gefa fósturfjölskyldum okkar einhverjar gjafir frá Íslandi. En, til dæmis eins og ég, hvernig eigum við sem erum ekki komin með fjölskyldu að vita hvað mikið við ættum að kaupa af því sem við ætlum að reyna að gefa þeim. Það er spurning... Svoo ef þið hafið einhverja hugmynd um hvað ég gæti gefið verðandi fjölskyldunni minni þá megi þið endilega láta mig vita!
Mamma og pabbi ákváðu að taka að sér skiptinema. Við Sólrún hvöttum þau til þess. AFS stofan hér á Íslandi sendi okkur, sem voru að fara sem skiptinemar frá Íslandi, póst og spurði hvort að foreldrar okkar höfðu áhuga á því að taka að sér skiptinema. Ég nefndi þetta við þau og þau ákváðu á endanum að taka einn svoleiðis og varð stelpa frá Tælandi fyrir valinu. Hún heitir Preeya og er einu ári yngri en ég eða 16 ára. Hún kom síðasta sunnudag og ég held að henni líki bara mjög vel. Ég er mjög ánægð að ég fékk þessa viku til að kynnast henni og er hún mjög fín stelpa.
En ég er búin með einnfjórða af leiðinni. Er núna komin til Sólrúnar á Akureyri og verð hjá henni til þriðjudags og þá höldum við mamma, pabbi, Svanhildur og Preeya til Reykjavíkur og hitta Elías, hlakka mikið til að hitta hann. Svo er það flug út á föstudaginn og svo, ef ég man það rétt, verðum við í París í 2 daga og svo er það bara heim til fjölskyldunnar!!! Ég fékk flugmiðann minn í síðustu viku og fljúgum við með WOW, spennadi að vita hvernig það verður. Já, svo megum við bara hafa 20kg með okkur!! hvernig eigum við að koma nærri öllu lífinu okkur fyrir í 20kg?!! Ég veit það að ég verð yfir þessari þyngd og ég held að það eigi við um felsta skiptinema, allavega flestar stelpur haha. En já, núna er ég bara hjá Sólrúnu, veit ekki hvað planið er í kvöld en við ættlum að hafa gaman! Ég veit það að ég á eftir að sakna hennar mjöög mikið og allra í fjölskyldunni og alla vinanna en ég kem aftur heim. Þá verð ég öll frönsk.
En ég held að þetta sé komið nóg í bili. Læt ykkur vita þegar ég fæ einhverjar fréttir af fjölskyldunni.

cordialement/kærar kveðjur

Rakel Brá