Þá eru aðeins 1 dagar í að maður heldur af stað í heljarinnar ævintýri. Ég var á Akureyri til þriðjudagsins en þá fórum við mamma, pabbi, Svanhildur og Preeya suður. Ég þurfti að kveðja Sólrúnu á Akureyri og það var alveg hræðilega erfitt, já... það var grátið. En á mánudagskvöldið fékk ég að vita að ég væri komin með fjölskyldu og var að mikill léttir en afs stofan hér á Íslandi var ekki komin með neinar upplýsingar um fjölskylduna og ætluðu að senda mér þær um leið og þær mundu berast til þeirra. Á Þriðjudagskvöldinu fékk ég síðan póst frá Martine og Patrick og tilkynntu þau mér að þau væru fósturforeldrar mínir næstu 10 mánuðina og ætlu þau að senda ýtarlegri upplýsingar um þau og senda myndir af fjölskyldunni og af húsinu þeirra. Svo bara seinna um kvöldið fékk ég þær upplýsingar og lýst mér mjög vel á þessa fjölskyldu. Þetta er sex manna fjölskylda, tvær dætur og tveir synir. Stelpurnar eru 25 og 20 og strákarnir eru 23 og 15. Yngri dóttirin og yngri sonurinn búa heima. Þau eiga hund en hann er heldur minni en minn. Bærinn heitir St Mathurin sur Loire og er hann í vesturhluta Frakklands. Mér líst mjög vel á fjölskylduna og staðinn. Ég er búin að vera í sambandi við þau í gær. Í dag munum við mamma og pabbi fara á fund hjá afs um dvölina mína úti.
Á morgun mun ég svo flúga frá Íslandi klukkan 15.30 og lenda í París klukkan 21.15. Þá munum við fara á hótel þar sem allir hinir skiptinemarnir eru og eyða með þeim föstudagskvöldinu og öllum laugardeginum. Ég held að planið sé að fara í þriggja tíma skoðunarferð um París og svo frétta ég frá einum skiptinemanum að við munum fara að Eiffel truninum og dansa einhvern funcky chickan dance en ég veit ekki hvort að það sé rétt...
Þetta er lítil mynd bænum.
Þetta er húsið sem ég mun búa í.
En já, þá held ég að þetta sé komið í bili. Þið heyrið nú vonandi í mér næst þegar ég verð úti en þið megið alveg búast við því að það líði langt á milli blogga... En ég ætla samt að reyna að vera duglega. Endilega commentið eitthvað, það er gaman að lesa þau!
Bestu Kveðjur
Rakel Brá!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli