þriðjudagur, 20. nóvember 2012

2 mánuðir og 13 dagar


Ég hugsa að það sé kominn tími á nýtt blogg!

SEPTEMBER

Í lok September fór ég ásamt fjölskyldunni á "ströndina". Hún leit nú meira út eins og íslensk fjara en hún var nánast bara klettar. Þad var sól en ekkert rosalega heitt. Áður en vid fórum á ströndina forum við til systur Martine (fósturmömmu) og borðuðum hádegismat. Við vorum einn og hálfan tíma að keyra þangað frá þar sem ég bý og svo var halftime keyrsla þaðan til strandarinnar. Við löbbuðum mikið og skoðuðum bæinn og svo sátum við öll á bekk við sjóinn og horfðum á sólina setjast niður, allt svo rómó í Frakklandi. Seinna um daginn forum við til næsta bæjar og það voru þvílíkt mikið af skútum. Mig langaði alveg svolítið að taka eina og koma með hana heim. Daginn eftir forum við á fiskmarkað með helling af skeljum og sjávardýrum. Fyrir hádegi ætluðum við í sjóinn en staður sem við fórum á var ekki alveg að gera sig því að það var enginn sandur bara grjót svo við  snerum við og borðuðum hádegismat sem var sjávarmaturinn sem við keyptum um morguninn. Við borðuðum úti og ég brann smá... öðru megin á andlitinu. Eftir matinn ákváðum við Martine og Alexis ( fósturbróðir) að reyna að fara aftur í sjóinn á öðrum stað. Það var ekki heitt og sjórinn var býsna kaldur en hann var samt mun hlýrri en sjórinn heima!! Þau voru ekkert á þvi ad trúa mér. En öldurnar voru svolítid háar sem gerði þetta bara enn skemmtilegra þvi við Alexis skutumst alveg upp þegar þær skullu á okkur. Þad var æðislega gaman!! hlógum dátt.

OKTÓBER

Mánudagur var fyrsti dagurinn í október í ár og hélt ég að mánuðurinn myndi byrja mjög vel þvi á mánudögum hef ég bogfimisæfingu og á þessari æfingu kom maður til mín og spurði mig hvort ég væri frá Íslandi og aðvita jankaði ég því, svo sagði hann mér að hann væri mikill aðdáandi Íslands. Hann hefur lesið 6 bækur eftir Arnald Indriðason og veit þar með alveg slatta um +Ísland. Hann vissi hvernig föðurnöfnin okkar virka og hann vissi um Íslendingabókina. Hann er fyrsti madurinn sem ég hef hitt sem vissi eitthvað meira um Ísland en að það sé eldfjall, enginn McDonalds og heitt vatn. Svo kom 2.október... Vaknaði klukkan 6 um morguninn með ælupest! High five Rakel. Hef aldrei tekið jafn mikið af einhverjum töflum fyrir ælupest áður en það virkaði allavega því ælan hætti seinnipartinn en ég var alveg frá næstu 2 daga, með hita, beinverki og hausverk og svo bætist hálsbólga og kvef við. Svo smitaði ég Alexis af ælupestinni, múhahahaaaa J.
Ensku kennarinn minn spurði mig hvort ég vildi halda fyrirlestur um Ísland og auðvitað vildi ég það. hef aldrei verið jafn spennt yfir neinu í skólanum eins og þessu. Þjóðarstoltið skein frá mér. En fyrirlesturinn gekk mjög vel, ég talaði allavega í klukkutíma. Vid Dominika áttum að skipta 50 mín á milli okkar og ég byrjaði og... ja, hún fékk ekki að tala mikið i þessum tíma.
Sunnudaginn 14. Okt. var AFS hittingur og fórum við í einhverja námu sem var alveg stuð. Þad kom íslensk stelpa sem var skiptinema hérna í Frakklandi fyrir tveimur árum og núna er hún í háskóla hérna. En það var alveg þvílíkt skrítið að tala íslensku við hana því ég vissi ekki að hún væri að koma og allir voru að tala frönsku í kringum okkur. Ég fékk skemmtilega spurningu í skólanum þá viku. Það kom strákur til mín sem er með mér í bekk og spurði hvort ég væri aldrei spennt eða glöð yfir neinu! Ég hefði kannski getað svarað honum með glaðlegri svip en ég sagði að ég væri of glöð með mjög alvarlegum svip og ég held að hann hafi verið alveg lúmskt hræddur vid mig. (Adamsfamilían J) Um miðjan mánuðinn kom stelpa frá Þýskalandi og var hjá okkur í viku. Hún er jafngömul og Alexis og er þetta einhverskonar skiptinám því að hún er að læra frönsku og svo fer Alexis til Þýskalands í viku í janúar því hann er að læra þýsku. Vid Dominika fórum með bekknum hans Alexis og þýsku krökkunum að skauta sem var mjög gaman og ég var spurð hvort að hitastigið á Íslandi væri eins og þarna. Kvöldið 26.fór ég á James Bond í bíó með Aude (fóstursystir) og auðvitað var myndin á frönsku en ég held samt að ég hafi fattað myndina. Salurinn er mikið stærri en heima og sætin voru svona þúsund sinnum þægilegri. Hefði auðveldlega geta sofnað þarna. Kvöldið áður, síðasta kvöldið sem Justine (þýskastelpan) var hérna, fórum við út ad borða með annari fjölskyldu og veitingahúsið var einhverskonar hellir, mjög smart. Í lok mánaðarins var verkfall á lestarstöðinni þannig að ég þurfti að fara með bíl um morguninn og taka rútu tilbaka og sem betur fer var það bara i 2 daga.

NÓVEMBER

Mánuðurinn byrjaði á tveggja vikna fríi. Sem var mjög fínt og afar rólegt. Ég byrjaði á þvi að fara til Dominiku í "sleepover". Við elduðum pítsu og cookies og horfðum á myndir. Eða við reyndum að baka pítsu og ég horfði á mynd. Við fórum út í búð til að kaupa hráefni í pítsuna því okkur langaði að gera hana frá byrjun með ást og umhyggju en við ákváðum samt að gera plan B og keyptum tilbúna pítsu líka sem var afskaplega góð hugmynd þvi að þegar við tókum eftir þvi (eftir að vera búin að láta pítsuna okkar hefast í einn og hálfantíma) að pítsan okkur fékk greinilega ekki næga ást frá okkur því að degið stækkadi ekki eftir nóttina... En tilbúnu pítsurnar heppnuðust vel.
Svo skelltum við Aude, Martine og Alexis í dýragarðsem er í tveggja tíma keyrslufjarlægð frá þar sem ég bý og var alls ekki að hata það. Sérstaklega af þvi að draumurinn minn rættist loksins, þvi í fyrsta sinn sá ég mörgæsir með eigin augum og þeir sem þekkja mig mjög vel vita að ég elska þær. Við fórum líka í heimsókn til ættinga Patricks (fosturpabbi) og Martinar og þar eyddum við mestum tímanum í að borða. Þriðja nóv fór ég á fyrsta hokky leikinn minn og er ég ekki vissi hvort ég hafi taugar í það, þvi leikurinn var eins og hin besta spennumynd. Við fórum að skoða Nantes sem er bær þar sem Aude fer í skóla. Við skoðuðum kastalann þar og verslunnargöturnar. Mér finnst þetta vera mun fallegri bær en Angers ( þar sem ég fer í skóla), kannski er það vegna þess að hann er eldri og húsin meira gamaldags. Siðustu helgina í fríinu þá fór ég á AFS hitting frá laugardeginum tils unnudagsins og var alveg þvílíkt gaman. Kynntist mörgum stelpum þar mjög vel. Ég talaði heillengi vid stelpu frá Noregi og strák frá Bandaríkjunum, sem var einn af sjálfboðaliðunum, (hann var skiptinemi í fyrra en ákvað að vera lengur) um íslenskan mat og að íslendingar séu allir skildir og þau hlógu endalaust af þvi að við borðum hrútspunga. Við fórum í nokkra leiki og svo var okkur skipt í hópa, hver hópur átti að sjá um matinn og þrífa, og auðvitad þurfti ég að lenda í matarhópnum. Ég var sett i það að skera niður lauka og var ég sú eina sem fór að gráta og allir gerðu grín að mér. Ég reyndi að halda mér frá eldamennskunni.
Annar ensku kennarinn minn spurði bekkinn hvort þau þekktu Game of thrones og var ég sú eina. Hún er að lesa sjöttu bókina og mig hefur lengi langað til að lesa tær. Hún bauðst first til þessað lána  mér bókina en svo kom hún til mín og sagði að hún skyldi bara gefa mér hana þvi að hundurinn hennar hafi étið framan af henni. Á föstudaginn gisti Dominika hjá mér og horfdum við á allar Twilight myndirnar og er planið siðan að fara á siðustu myndina í bíó á miðvikudaginn. Sem audvitad verur à fronsku.

Ég held að þetta sékomið í bili. Vonandi fyrirgefið þið mér fyrir að vera ekki nógu dugleg í blogginu.





Þangað til næst




2 ummæli:

  1. Mér finnst fyndið að það var spurt þig hvort þú sért aldrei glöð. Sérstaklega afþví að það var alltaf verið að segja mér að brosa meira ;)

    SvaraEyða
  2. Svo mikið kvikindi að hlæja af Alexis... :) Snilldar blogg hjá þér :)

    -Sólrún

    SvaraEyða