mánudagur, 3. júní 2013

Vive la France! Mánuður í elsku Ísland!

Komið þið sæl og blessuð!
Ég verð að segja að eftir áramótin hefur tíminn verð fljótur að líða, tók varla eftir honum. Núna er rúmlega mánuður eftir og ekki hægt að lýsa því í einu orði hvernig mér líður. Auðvitað hlakka ég til að hitta alla heim (Get reyndar varla beðið) sjá Ísland aftur, geta drukkið vatnið beint úr krananaum án þess að finna skrítið bragð, drekka mjólk (eitthvað sem ég er ekki búin að gera í mánuði…), borð ekta íslenskan mat og fleira en ég á eftir að sakna allra og alls hérna í Frakklandi líka! Fósturfjölskyldan sem hefur verið mér svo góð og allir krakkarnir sem ég hef kynnst sem er allsstaðar að af heiminum, Noregi, ítalíu, tékklandi, ameríku, ástralíu, colombiu og svo lengi mætti telja. Þessi reynsa hefur gefið mér svo margt og nýtt álit á heiminn og aðrar menningar. Sjálf finnst mér ég hafa breyst, allavega smá en ég leyfi ykkur að dæma þegar ég kem heim. Á ég þá að byrja á að rifja upp allt það sem ég gerði síðan í byrjun mars? Byrjum þetta!
Eftir að ég kom frá Svönu tók allt sinn vanagang. Hanna, er stelpa frá Noregi, kom til mín þegar ég kom heim og við eyddum helginni saman. Við fórum á bæjarball. Mjög svipað og böllin sem eru heima. Það voru bornar fram veitingar, þrír réttir (ekkert allir góðir). Svo var dansað fram á nótt. Á þriðjudaginn eftir heimkomu áttu allir sem eru á terminal (Elstu bekkirnir) að mæta í búningum. Ég var allann mánudaginn að spá í hvað ég gæti verið, þótt ég hafði alveg smá hugmynd um hvað mig langaði að vera en hvar gæti ég nálgast það… Ég fór því þegar ég átti klukkutíma eyðu í skólanum og rölti um miðbæ Angers í leit að þessum búning. Ég hafði séð búningabúð þar einhverstaðar, rétt hjá bíóinu þannig leið mín lá þangað. Og viti menn, þegar ég fann búðina var þá ekki bara mörgæsabúningur í glugganum! Leitinni var lokið! Ég fór því inn og fékk að leigja búninginn fyrir morgundaginn. Ég sótti búininginn fyrir skólann næsta morgun og mæti í þessum þvílíkt flotta mörgæsabúningi. Með því fyrsta sem bekkjarfélagar mínir fengu að vita um mig var að ég er með æði fyrir mörgæsum! Og því þegar ég mætti í skólanum voru viðbrögð þeirra: Neeei!! Haha kemur á óvænt að Rakel sé mörgæs!!  Það sem eftir var af deginum, gekk ég um í þessum ofur svala búningi og heyrði alla hvísla í kringum mig: haaa sáðu mörgæsina, hey mörgæs! Mér fannst það ekkert leiðinlegt! Ég var mjög ánægð með þennan dag! Annar ensku kennarinn minn bauð mér svo í mat eina helgina. Aðalega til að tala um Ísland, því þau fjölskyldan vilja gjarnan heimsækja Ísland. Hún á dóttur sem er ári yngri en ég og urðum við ágætis vinkonur.
Við fórum á hestasýningu, veit ekki alveg hvort það sé rétt að kalla þetta hestasýningu.. En þetta var sem sagt þannig að við fengum að sjá nokkur hestatrix með tónlist, þetta var áhugaverðara en ég get lýst! Karlarnir voru í gamaldagsherfötum og með gamla hnakka. Ekki hnakkar eins og við erum vön að sjá. Það er mjög stór hestaskóli þarna og herskóli og notar herinn stundum hestana. Og guð minn almáttugur hvað þetta voru hávaxnir hestar!!! Ég var alveg pínu hrædd! Ég sá tvær stelpur sem voru að fara á hestbak og þær þurftu að fara uppá kannski svona 40cm pall til að komast uppá hestana! Aldrei séð svona hávaxna hesta áður. Mér líkar betur við litlu sætu íslensku hestana sem eru
ekki of hávaxnir til að gera mann lofthræddann. Skoðuðum síðan kastalann í Saumur. Það eru kastalar út um allt Frakkland og ég elska það!! Þeir eru svo fallegir! Í tveimur af mörgum köstulum sem ég hef heimsókt býr ennþá fólk!
17. apríl 2013 var besta verðið sem ég hef fengið í Frakkalandi og örugglega það heitasta sem ég hef upplifað! Það var 28 stig í skugga, og í sólinni, lá maður bara í svitabaði! Ég lét mig samt hafa það og ætlaði að ná í smá lit… brann pínu á öxlunum og tánum. Takk sólavörn! Svo var komið að síðasta tveggja vikna fríinu!!
Við fóstumamma, amman og ein frænkan skelltum okkur á carnaval. Við vorum ótrúlega heppin með veður því veðrið hérna í Frakklandi hefur ekki verið svona lélegt í 30 ár! Við grínumst með það að þetta komi með mér en… Öllu gríni fylgir einhver alvara. En já carnavalið. Það var alveg ótrúleg sjón! Þetta var riiiisa skrúðganga með helling af fólki! Þetta var eiginlega bara alveg eins og í biómyndunum! Það voru margar þemur, frumskóga, álfa, diskó, trúða(leist nú ekkert svo vel á þá), karlar með sekkjapípur, býflugur, back to the futur og margt margt fleira!
Við fórum og heimsóktum sveppasafn og guð minn almáttugur hvað eru til margir sveppir. Datt aldrei í hug að sveppir gætu látið mig hlæja… Fóstur mamma mín fór síðan með mig að heimsækja gamla vindmyllu! Þetta er kannski ekkert það mest spennandi í heimi en þetta er eitthvað sem við höfum ekki á Íslandi (að ég held). Karlinn ætlaði að leyfa okkur að sjá hana snúast fór að snúa húsinu en gat það ekki sjálfur þannig við Martine fórum að hjálpa, vorum þarna þrjú að toga og ýta í stiga sem er fastur við húsið,  náðum að snúa húsinu en ekkert gerðist.
Ein stelpan, Mariana, sem er líka skiptinemi átti afmæli og við ákváðum að gera eitthvað fyrir hana. Við fórum, 5 skiptinemar, með Mariönu, og 6 krakkar sem eru með henni og Hönnu í bekk, í Lazergame. Því miður þá unnu frönsku krakkarnir en ég er sátt með það að ég var sú eina í mínu liði sem var ekki í mínus og þar af með hæstu stigin! En ég var sú eina sem náði að drepa einn af mínum eigin liðsfélögum… en við skulum ekkert tala meira um það. Svo fórum við öll á mcdonalds og svo í bíó. Fórum á franska grínmynd. Fyrsta franska myndin þar sem ég skil alla myndina og alla brandarana!! Svo fórum við öll sitthvora leiðina og ég fór til heim til Hönnu og gisti þar. Missti næstum því af lestinni morguninn eftir, þurfti að hlaupa! Elska þegar það gerist! Juliana, stelpa frá Colombiu kom og var hjá mér í 3 daga. Við fórum til Angers, ásamt Mariönu í mígandi rigningu og kulda! En við létum það nú ekki stoppa okkur. Planið var síðan daginn eftir að fara öll fjölskyldan, ásamt Juliönu, og heimsækja einhvern park með víkingum en hvað haldi þið að hafi stoppað okkur?… Rigningin! Við lögðum af stað klukkan 8 um morguninn, gerðum samlokur og vorum tilbúin fyrir daginn. Vorum búin að keyra í klukkutíma þegar við ákváðum að snúa við vegna rigningu. Það er ekkert það skemmtilegasta að fara í lautarferð í mígandi rigningu. Og þetta var miklu meira en það sem við köllum mígandi rigningu heima á Íslandi!
Í lok apríl fórum við, fósturmamma, fóstursystir og 5 aðrir ættingjar í Bioparc sem er dýragarður… Með mörgæsum! Það var kona að kynna mörgæsirnar og sagði að þetta væru ekki mörgæsir því þessar kunna ekki að fljúga… Ég stóð þarna og hugsað bara, hmmm þetta getur ekki verið rétt… Spurði fóstumömmu mína hvort að konan hafi virkilega sagt þetta og hún sagði já. Hlýtur að vera að við höfum heyrt eitthvað vitlaust. Í byrjun mars fór ég svo með Hönnu að vinna á hestabúgarði. Við fegnum verkefni frá AFS að við ættum að gera sjálfboðavinnu og Hanna kom með þá hugmynd um að fara að vinna á hestabúgarði þar sem velkomufjölskyldan hennar (hún skipti um fjölskyldu) vann við það. Og af því ég var ekki búin að finna hvað ég gæti gert spurði ég hana hvort ég mætti ekki bara koma með  (aðeins að troða mér) og hún sagði já. Þannig við fengum að vinna þar í 3 daga og var það súper gaman! Sáum um að koma hestunum út á morgnana og setja þá inn á kvöldin, gefa þeim að borða og hreinsa stíurnar. Fengum líka að fylgjast með þegar það var verið að setja sæði í hryssuna… með stoð hesti og líka þegar þeir sprautuðu því inní þær…. Mjög áhugavert. Sáum svo eitt kvöldið þegar folald kom í heiminn!
Þetta gerðist allt í tveggja vikna fríinu. Svo mætti ég í skólann í tvo daga og svo var komið langt helgar frí (Y) Þá var leiðinni okkar haldið í mið-Frakkland það sem við heimsóktum Vulcania sem er eldfjallagarður. Spennandi!!! Fyrsta stopp var bíósalur þar sem kynnir fór með okkur yfir helstu eldfjöll í heiminum. Og gíski þið á hverju var byrjað!!! ÍSLANDI!!! Við vorum þarna fjögur, ég Martine, Partick og Alexis þvílíkt spennt! Hann fór að tala um Eyjafjallajökul og hann má eiga það að hann náði að bera Eyjafjallajökull alveg þokkalega vel fram! Fórum svo í nokkra 5D sali og eitthvað fleira í þá áttina. Svo rölti ég inná myndagalleri þar sem voru slatti af myndum frá Íslandi! Bláa lónið, eldfell í Vestmannaeyjum og Eyjafjallajökull og fleiri. Ég tók myndir af öllum myndunum… Fórum svo um kvöldið og borðuðum í einum fallegasta bæ sem ég hef séð! Daginn eftir  heimsóktum við endurgerðann helli þar sem voru teikningar eftir fyrsta manninn í evrópu, ef ekki heiminum. Heimsóktum líka kastala og annað sjúklega flottann bæ! Keyrðum framhjá háum kletta vegg þar sem fólk var búið að gera að heimilum sínum hér áður fyrr. Svo um helgina vorum við ásamt allri fjölskyldunni PINEAU (sem sagt foreldrar fóstupabba og afkomendur þeirra) rétt hjá ströndinni. Leigðum húsnæði með sundlaug og vorum saman alla helgina! Við fórum ekki mikið á stöndina því eins og veðrið er búið að vera síðan ég koma þá hefði verið frekar kalt. Þau halda að ég sé ekki vön skrítnum og æstum ættingjum en þau vita ekki að ég er vön miklu verr! Helgina eftir kom svo Dominika, stelpa frá Tékklandi sem var með mér í bekk en fór eftir þrjá mánuði, aftur til Frakklands af því fósturpabbi hennar var að halda uppá afmælið sitt og hann bauð henni að koma og bauð  mér líka svo við gætum hittst. Hún kom á fimmtudaginn til Angers eftir 22 tíma rútuferð frá Tékklandi… Á föstudaginn kom hún svo í skólann til að hitta alla krakkana og svo eftir skóla fórum við heim til Gérard (fósturpabbi hennar) Þá voru gestir hjá honum frá Hollandi og þau töluðu ekki frönsku þannig við töluðum öll á ensku. Ekki það að ég hafi eitthvað verið að kvarta. Svo komu fleiri gestir, frá Þýskalandi, þannig enskan hélt áfram. Svo morguninn eftir var haldið til bæjarins þar sem veislan var haldin. Þar gerðum við allt til fyrir kvöldið. Svo byrjaði stuðið! Helling af eldra fólki að dansa salsa og vals og tangó. Þetta var reyndar skárra en ég hélt að þetta yrði.
Síðustu helgina í Maí fór ég með AFS að heimsækja litla eyju. Til að komast á eyjuna þurftum við að labba yfir veg sem hverfur þegar sjórinn hækkar. Hefðum reyndar getað keyrt yfir brú en hvar er stuðuð í því? Það var heill hellingur af fólki sem voru að týna skeljar þarna. Þegar við vorum öll komin á eyjuna var tekin hópmynd af öllum með afs fánanum, svo var förinni haldið á fiðrildaræktun. Við borðuðum áður en við fórum inn í húsið þar sem allt var morandi af fiðrildum. Það var eitt sem var alveg 20cm á breidd!!! Það var sem betur fer sofandi! Gaman að segja frá því að svo settist eitt á öxlina á mér. Inni hjá fiðrildunum var steikjandi hiti, 27 gráður og þegar við komum út og fórum að kvarta um hitan sat ofursvalur maður við afgreiðsluborðið og sagði að þetta væri nú frekar kalt… Fyrsta júní var veisla fyrir allann bæjinn. Slatti af fólki í bænum hittust í kringum hádegi og borðuðu saman. Það var grillað heilt svín á gamla máttan. Það var maður sem sat við eld og sneri svíninu og var búin að gera það síðan klukkan 7 um morguninn og hann byrjaði að sker það niður um 16 og gamli var búin að gera þetta í hvorki meira né minna en 25 ár. Hver fjölskylda kom með eitthvað gotterí frá sér, forrétt eða eftirrétt. Svo var svínið skorið niður í búta á staðnum og var það alveg heeeevíti gott. Daginn fórum við á blómamarkað (fósturpabbi er garðyrkjufræðingur eða eitthvað í þá áttina) og slóum tvær flugur í einu höggi því það var kastali þar við. Og það er ennþá fólk sem býr í honum og er búinn að vera í þeirra ætt í margar margar aldir!
Þetta er svona í nokkuð grófum dráttum hvað ég er búin að vera að gera síðan í mars. Held ég sé ekki að gleyma neinu mikilvægu nema kannski bara hvernig mér er að ganga. Ef ég á að segja eins og er þá er ég ekki reiprennandi í frönsku en ég get alveg bjargað mér á henni og mér finnst það alveg nokkuð mikill árangur. Ef ykkur finnst það ekki, ekki brjóta mig niður með því að spurja afhverju ég kunni svona lítið eða ehv í þá áttina. Djók þið megið það alveg, samt ekki. Eins mikið og mig hlakki til að koma heim þá á ég eftir að sakna alls því æðislegs fólks sem ég hef kynnst alveg rosalega mikið og það á eftir að verða erfitt að kveðja þau öll! En við reynum eins og við getum að vera í bandi.
Næst á dagskrá, það sem eftir er af mánuðinum er að fara á ball, fyrir terminal (elstu bekkina), svo er bara sumarfrí. Planið er reyndar að fara til Parísar að heimsækja Guðbjörgu beibz og eyða nokkrum góðum sumardögum í París áður en haldið er heim. Ég hugsa að þetta verði mitt síðasta, vona að þið urðuð ekki fyrir of miklum vonbrigðum með ÖLL bloggin mín. En hver veit nema ég skelli einu inn áður er ég kem heim, verð nú að segja ykkur frá Parísar ferðinni og svonna. Eiginlega eina ástæðan afhverju ég byrjaði loksins á þessu bloggi er af því að núna er síðasta vikan í skólanum og sumir tímarnir falla niður. Venjulega á mánudögum byrja ég í íþróttum klukkan 10 en af því ég er búin prófið þá var ekki tími sem þýðir að næsti tíma byrjaði klukkan 13. Eeeen það er enginn lest milli klukkan 8.08 og 13.59 þannig ég þurfti að gjöra svo vel að tala lestina klukkan 8 og þar með að bíða í 5 tíma. Byrjaði reyndar ekki á blogginu fyrr en klukkan 10 en það er allavega komið blogg! Svo er enginn skóli hjá mér á fimmtudaginn af því venjulega er bara enska hjá mér þessa daga og ensku kennararnir verða ekki við þannig… Frí fyrir mig!!! Svo er þetta bara að verða búið!
Vona að þið hafið haft ágæta skemmtun við að lesa þetta, og að þetta hafi ekki verið of niðurdrepandi. Endilega skrifið athugasemd og segið frá áliti ykkar :D

Engin ummæli:

Skrifa ummæli