Reyni mitt besta ;)
Jæja... Þá ætla ég að reyna að halda blogg meðan ég verð úti í French. Guð veit hvernig það á eftir að enda en ég ætla að reyna mitt besta. Ég ákvað að hafa blogg svo að fjölskyldan mín og vinir gætu fylgst eitthvað með mér meðan á dvöl minni stendur. En á morgun er akkurat mánuður þangað til að ég flýg út. Ég er ekki enn komin með fjölskyldu en ég vona að hún komi á næstunni. Ég verð að segja að ég er farin að kvíða smá fyrir en ég efast ekki um að þetta eigi eftir að vera skemmtileg lífsreynsla, erfið en skemmtileg :)
Au revoir
Rakel Brá
Verður gaman að fylgjast með þér og góða ferð út :D Fjölskyldan kemur, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur :D Njóttu þess bara í botn að vera úti og upplyfa þetta ævintýri.. það er ég allavega að gera :D
SvaraEyða- Kveðja frá Malasíu