Eins og ég sagði í fyrra bloggi þá ákvað ég að
skella mér til Lyon fyrstu vikuna í mars og heimsækja Svönu. Ég fór með lest
sem var 3 og hálfann tíma á leiðinni, frá Angers til Lyon, og svo þurfti ég að
skipta um lest. Landslagið og húsin hérna er allt öðru vísi en þar sem ég bý.
Það eru meiri hólar og hæðir hérna Ég var þvílíkt stressuð! Þetta var nú fyrsta
stóra lestarferðin mín ein en þetta gekk allt mjög vel. Svo þegar ég hitti
Svönu þá verð ég að segja að það hafi verið pínu skrítið og, já, pínu
vandræðalegt en samt bara fyrstu 5 mínúturnar svo vorum við komnar á ágætt
skrið. Svana kom með fóstupabba sínum að sækja mig. Hann fór sem skiptinemi á
íslandi þegar hann var 17 ára. Á mánudeginum fórum við út í búð til að kaupa í
kökurnar, maregns og súkkulaði kaka, sem við ætluðum að baka fyrir þriðjudaginn
(STÓRI DAGURINN). Þegar komið var í búðina og við vorum að borga vörurnar voru
tveir ungir menn á undan okkur og fóru þeir að horfa rosa mikið á okkur og
byrjuðu síðan að tala við okkur. Við reyndum nú bara að tala sem minnst við þá
og koma okkur í burtu en þetta var ekki allt sem gerðist þennan dag. Frakkar í
suður frakklandi eru miklu meira fyrir það að flauta og horfa á ungar konur og
það gerðist alveg nokkuð oft meðan við vorum að labba í næstu búð. Svo þegar
við vorum að labba á gangstéttinni og það voru nokkrir bílar að keyra framhjá
og það voru einhverjur strákar sem flautuð á okkur og um leið og þeir voru
farnir var einhver bíll sem henti mandarínubörki í okkur!!! Lenti samt bara á
Svönu. Þetta eitt af því fyndnasta sem gerðist þessa viku og hélt ég að ég
myndi deyja úr hlátri. Vil líka koma því að að það var +22°c þennann mánudag,
reyndar með pínu vindi en hann var ekki kaldur.
Svo komi stóri dagurinn!!! Kjéllann varð að konu! Við borðuðum kökurnar í
hádeginu með foreldrum hennar og Svana var svo krúttleg að hún var búin að
kaupa kerti með tölunni 18 og blys án þess að ég vissi. Svo fórum við að gera
okkur sætar því við fórum svo bara út að borða um kvöldið, svo rómó og skoðuðum
bæinn sem hún býr í sem er órtúlegar flottur. Við fórum á Mexikóskan stað og
héldum svo áfram að skoða bæjinn.
Á miðvikudaginn fórum við svo til Lyon með
nokkrum af hinum skiptinemunum frá þessu svæði. Það var rigning... en það
stoppaði okkur ekki. Lyon er ótrúlega falleg borg, og stór!!!
Á fimmtudaginn fórum við svo til Valance. Hún
er miklu minni en Lyon og, að mér finnst, fallegri. Við fórum með nokkrum öðrum
skiptinemum, skoðuðum bæjinn og fórum á skauta. Það var +20°c í Valance en samt
frekar kaldur vindur. Við sáum skrúðgöngu þar sem börn voru í aðalhlutverki með
trommuslætti og stórum skrítnum brúðum. Það var rosa gaman að sjá þetta! Svo
fórum við að skauta.
Verð líka að koma því að, að í gærkvöldi þegar
við Svana vorum á leiðinni heim til hennar frá rútunni eftir Valance þá vorum
við að labba framhjá háum veggi og það var rugby æfing á vellinum fyrir aftan
vegginn, og ég var forvitin og var að kíkja í gegnum lítið gat þegar Svana fór
allt í einu að öskra, frekar hátt og ég bara panikaði og hélt að það væri
randafluga þannig ég tók sprettinn í burtu frá veggnum (hafði samt ekki hugmynd
um hvað væri í gangi). Þá var ógeðslega stór könguló á veggnum. Bara við að
vera íslendingar...
Takk fyrir vikuna Svana! Hún var æði!
Núna sit ég bara í lest (þegar ég er að skrifa
þetta blogg), aaalveg að koma til Angers og er að hlusta á Villa Vill!! Gæti
maður verið með eitthvað betra í eyrunum? Neeeei, ég held ekki. Sólin skýn í
dag og ég held svei mér þá að sumarið sé bara að fara að koma. Þessa helgi er
ég svo að fara á einhverja bæjarhátíð í bænum mínum á laugardaginn. Það verður
matur og einhver tónlist og stuð. Ég bauð Hönnu, skiptinemi frá Noregi og mun
hún vera hjá mér alla helgina! Við erum búnar að ná mjög vel saman, enda nánast
frænkur.
Svo byrjar skólinn bara aftur eftir helgi og
næsta tveggja vikna frí í lok april. Ég trúi ekki að þetta sé alveg að verða
búið!! Bara 4 mánuðir eftir!!! Hvert fór tíminn eiginlega (ég er viss um að
mamma og pabbi hugsi þessa spurningu líka þar sem ég er orðin lögráða).
Þegar komið var í búðina og við vorum að borga vörurnar voru tveir ungir menn á undan okkur og fóru þeir að horfa rosa mikið á okkur og byrjuðu síðan að tala við okkur. Við reyndum nú bara að tala sem minnst við þá og koma okkur í burtu
SvaraEyðaÞeir voru nottla aldrei að horfa á OKKUR eða tala við OKKUR...
En takk fyrir vikuna unga kona lovjúú!! ;*